Hæ öll.
Ég heiti Berglind J. Richardsdóttir og rek Netbud.is. Ég er hársnyrti- og förðunarmeistari að mennt og hef starfað sjálfstætt síðan 2001. Fyrir tveimur árum byrjaði ég að sýsla með innflutning á skartgripum fyrir vini og vandamenn. Viðtökurnar voru mjög góðar, reyndar svo góðar að ég ákvað að setja þessa netverslun af stað.
Hver vara er eingöngu fáanleg í mjög litlu upplagi.
Ég bíð upp á fría heimsendingarþjónustu um allt land og afgreiði pantanir daglega. Pantanir sem sendar eru inn og greiddar fyrir hádegi fara í póst sama dag, en annars strax næsta virka dag. Þeir sem vilja geta sótt pantanirnar sínar og greitt vörurnar á staðnum.
Afgreiðslustaður:
Tröllateigur 26
270 Mosfellsbær
Sími: 896 4279
Ef þú ert með einhverjar spurningar þá er hægt að senda mér póst á berglind@netbud.is eða hringja í gemsann.
Bestu kveðjur,
Berglind J. Richardsdóttir

